Matthias Maurer | |
Matthias Maurer árið 2020. | |
Fæddur | 18. mars 1970 St. Wendel, Saarland, Þýskaland |
---|---|
Tími í geimnum | 177 dagar |
Verkefni | Cosmic Kiss |
Matthias Josef Maurer (fæddur 18. mars 1970 í St. Wendel í þýska sambandslandinu Saarlandi) er menntaður verkfræðingur með doktorsgráðu í efnisfræði og geimfari hjá ESA.[1]
Fyrsta geimflug hans var áætlað að vera til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar ISS þann 31. október 2021 með SpaceX Crew-3 geimfluginu, en NASA frestaði fluginu vegna veðurs til 3. nóvember[2] og þann 1. nóvember tilkynnti NASA að það verður aftur frestað og að flugið gæti byrjað í fyrsta lagi þann 6. nóvember 23:36 EDT.[3] Geimskotið varð þá þann 10. nóvember 21:03 EST.[4] Nafn ISS-leiðangurs hans, sem er gefið af ESA, er Cosmic Kiss.[5]
© MMXXIII Rich X Search. We shall prevail. All rights reserved. Rich X Search